KR samdi við framherja

Brandon Nazione mun leika með KR á komandi keppnistímabili.
Brandon Nazione mun leika með KR á komandi keppnistímabili. Ljósmynd/@sobbingjohn

Brandon Nazione er genginn til liðs við Íslandsmeistara KR í körfuknattleik og mun hann leika með liðinu út keppnistímabilið.

Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag en Brandon, sem er 26 ára gamall, er 203 sentímetra framherji.

Hann lék með Sporting í Portúgal á síðustu leiktíð en hann er Bandaríkjamaður með ítalskt vegabréf.

Brandon á að baki atvinnumannaferil í Þýskalandi, Argentínu, Úrúgvæ og síðast Portúgal.

Brandon kemur til með að hjálpa liðinu í baráttunni undir körfunni bæði varnarlega og sóknarlega,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu KR-inga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert