Curry fór upp fyrir goðsögn

Steph Curry í leik með Golden State Warriors gegn LA …
Steph Curry í leik með Golden State Warriors gegn LA Lakers á dögunum. AFP

Steph Curry, leikmaður Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfuknattleik, fór í nótt upp fyrir goðsögnina Reggie Miller og er nú í öðru sæti á eftir annarri goðsögn, Ray Allen, yfir flestar þriggja stiga körfur í sögu deildarinnar.

Curry setti niður fimm þriggja stiga körfur og skoraði alls 24 stig þegar Golden State tapaði 108:127 gegn Utah Jazz í nótt.

Þar með er Curry kominn með tveimur fleiri þriggja stiga körfur en Miller, sem gerði garðinn frægan með Indiana Pacers á 10. áratug síðustu aldar.

Curry á þó allnokkuð í land í að hrifsa fyrsta sætið af Allen, sem varð NBA-meistari með Boston Celtics árið 2008 og Miami Heat árið 2013.

Efstu fimm NBA-leikmenn yfir skoraðar þriggja stiga körfur:

  1. Ray Allen 2.973
  2. Steph Curry* 2.562
  3. Reggie Miller 2.560
  4. Kyle Korver* 2.450
  5. James Harden* 2.362

*Stjörnumerktir leikmenn eru enn að spila í NBA-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert