Tveimur leikjum frestað

Björn Kristjánsson, leikmaður KR í körfuknattleik, í baráttu við Kristófer …
Björn Kristjánsson, leikmaður KR í körfuknattleik, í baráttu við Kristófer Acox hjá Val á dögunum. Árni Sæberg

KKÍ hefur frestað tveimur leikjum sem áttu að fara fram í Dominos-deild karla í körfuknattleik í dag vegna ófærðar. Þetta eru leikir Þórs Akureyri við KR og Hattar við Tindastól.

Í tilkynningu frá KKÍ kemur fram að leikjunum sé frestað vegna lokunar á Öxnadalsheiði, en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ekki vitað hvenær heiðin verður opnuð þar sem enn er snjóflóðahætta á heiðinni sjálfri.

Stefnt er að því að spila báða leikina annað kvöld, mánudaginn 25. janúar. Leikur Hattar og Tindastóls mun fara fram klukkan 18:30 og leikur Þórs og KR mun fara fram klukkan 19:15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert