Annar grannaslagur í Ljónagryfjunni

Leikstjórnandinn Jón Arnór Sverrisson í leiknum gegn Val á dögunum.
Leikstjórnandinn Jón Arnór Sverrisson í leiknum gegn Val á dögunum. Mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Njarðvík tekur á móti Grindavík í kvöld í Dominos-deild karla í körfuknattleik og hefur liðið þá fengið báða nágranna sína í heimsókn í deildinni á innan við viku. 

Njarðvík tapaði fyrir Keflavík 77:90 síðasta föstudagskvöld en þétt er nú leikið í deildinni og í millitíðinni sótti liðið tvö stig á Hlíðarenda. 

Fjórir leikir eru á dagskrá í kvöld og hefjast þrír þeirra klukkan 19:15 en einn klukkan 20:15. 

Leikir kvöldsins: 

Njarðvík - Grindavík 19:15

Þór Akureyri - Tindastóll 19:15

Valur - Höttur 19:15

KR - Þór Þorlákshöfn 20:15

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert