Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Í stórleik næturinnar hafði Brooklyn Nets betur gegn LA Lakers.
Eina stórstjörnu vantaði í lið Brooklyn, Kevin Durant, og sömuleiðis vantaði eina slíka í lið Lakers, Anthony Davis.
Lakers virtist sakna Davis meira en Brooklyn saknaði Durant því síðarnefnda liðið vann að lokum góðan 11 stiga sigur, 109:98.
LeBron James reyndi hvað hann gat til þess að leiða sína menn í Lakers áfram og skoraði 32 stig, tók átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar en það reyndist ekki nóg. Kyle Kuzma var næststigahæstur Lakers-manna með 16 stig og náði tvöfaldri tvennu þar sem hann tók einnig 10 fráköst.
Hjá Brooklyn dreifðist stigaskorunin betur þar sem James Harden skoraði 23 stig, Joe Harris 21 stig og Kyrie Irving 16, auk þess sem varamennirnir Timothé Luwawu-Cabarrot og Landry Shamet komu sterkir inn af varamannabekknum með 15 og 10 stig.
Harden náði tvöfaldri tvennu með því að gefa 11 stoðsendingar að auki.
Öll úrslit næturinnar:
LA Lakers – Brooklyn Nets 98:109
Sacramento Kings – Miami Heat 110:118
Milwaukee Bucks – Toronto Raptors 96:110