Sara og samherjar eru óstöðvandi

Sara Rún Hinriksdóttir í landsleik.
Sara Rún Hinriksdóttir í landsleik. Ljósmynd/FIBA

Sara Rún Hinriksdóttir og samherjar í Leicester Riders eru áfram ósigraðar á toppi bresku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik eftir sigur gegn Oakland Wolves á útivelli í kvöld, 64:54.

Sara var næststigahæst hjá Leicester með 15 stig en hún tók auk þess þrjú fráköst og átti þrjár stoðsendingar. Hún spilaði næstmest í liðinu, í 31 mínútu.

Leicester hefur unnið alla sex leiki sína í deildinni og náði tveggja stiga forystu á Nottingham Wildcats með sigrinum í kvöld en á auk þess tvo leiki til góða. Hinsvegar hafa tvö önnur lið ekki heldur tapað leik en hafa spilað færri leiki. Mikið hefur verið um frestanir í deildinni í vetur vegna kórónuveirunnar og liðin hafa spilað frá tveimur upp í níu leiki hvert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert