Landsliðsmaðurinn kominn í Val

Hjálmar Stefánsson er kominn í Val.
Hjálmar Stefánsson er kominn í Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Körfuknattleiksdeild Vals og landsliðsmaðurinn Hjálmar Stefánsson hafa komist að samkomulagi um að Hjálmar leiki með liðinu út yfirstandandi tímabil. 

Hjálmar kemur til félagsins frá Aquimisa Carbojsa frá Spáni. Hjálmar er uppalinn hjá Haukum og hefur alla tíð leikið með liðinu hér á landi þar til nú. 

Hann skoraði sjö stig, tók fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar í leik með Haukum á síðustu leiktíð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert