Grikkinn fór á kostum í fjórða leikhluta

Giannis Antetokounmpo átti enn einn stórleikinn fyrir Milwaukee Bucks í …
Giannis Antetokounmpo átti enn einn stórleikinn fyrir Milwaukee Bucks í nótt. AFP

Giannis Antetokounmpo fór á kostum fyrir Milwaukee Bucks þegar liðið vann fimm stiga sigur gegn Los Angeles Clippers í NBA-deildinni í körfuknattleik í Milwaukee í nótt.

Leiknum lauk með 105:100-sigri Milwaukee en Antetokounmpo skoraði 36 stig fyrir sitt lið en 19 þeirra komu í fjórða leikhluta.

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og Milwaukee leiddi með fimm stigum í hálfleik, 53:48.

Boston náði yfirhöndinni í þriðja leikhluta, leiddi með fjórum stigum fyrir fjórða leikhluta, en í fjórða leikhluta skoruðu Milwaukee-menn 28 stig gegn 19 stigum Boston og þar við sat.

Milwaukee er í þriðja sæti Austurdeildarinnar með 21 sigur gegn Los Angeles Clippers er í þriðja sæti Vesturdeildarinnar með 24 sigra.

Úrslit næturinnar í NBA:

Milwaukee Bucks 105:100 LA Clippers
Boston Celtics 111:110 Washington Wizards
Detroit Pistons 90:109 New York Knicks
Houston Rockets 84:133 Memphis Grizzlies
Los Angeles Lakers 117:91 Golden Sate Warriors
Miami Heat 109:99 Atalanta Hawks
Minnesota Timberwolves 99:118 Phoenix Suns
Scramento Kings 126:127 Charlotte Hornets

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert