Þreföld tvenna Jokic – Jafnaði Chamberlain

Nikola Jokic náði þrefaldri tvennu í nótt.
Nikola Jokic náði þrefaldri tvennu í nótt. AFP

Serbneski miðherjinn Nikola Jokic átti stórleik þegar lið hans Denver Nuggets vann öruggan sigur gegn Milwaukee Bucks í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Jokic náði þrefaldri tvennu þegar hann skoraði 37 stig, tók 10 fráköst og gaf 11 stoðsendingar í leiknum.

Með því fór hann upp að hlið goðsagnarinnar Wilt Chamberlain þar sem hann náði fimmtugustu þreföldu tvennu sinni á NBA-ferlinum.

Fimm aðrir leikir fóru fram í deildinni í nótt, þar sem meistarar LA Lakers máttu til að mynda þola tap gegn Phoenix Suns.

Öll úrslit næturinnar:

Milwaukee – Denver 97:128

LA Lakers – Phoenix 104:114

Washington – Memphis 111:125

Boston – LA Clippers 117:112

San Antonio – New York 119:93

Miami – Atlanta 80:94

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert