Settu met í þriggja stiga körfum

Donovan Mitchell hefur verið besti leikmaður Utah Jazz á tímabilinu.
Donovan Mitchell hefur verið besti leikmaður Utah Jazz á tímabilinu. AFP

Utah Jazz setti met í NBA-deildinni í körfuknattleik aðfaranótt sunnudags þegar liðið vann öruggan 137:91 sigur gegn Orlando Magic.

Í fyrri hálfleiknum setti topplið Utah nefnilega niður 18 þriggja stiga körfur, sem er það mesta í sögu deildarinnar. Fyrra metið átti Golden State Warriors, 17 talsins.

Donovan Mitchell gerði 22 stig í leiknum og þar af sex þriggja stiga körfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert