Bikarinn fór til Texas

Leikmenn Baylor Bears fagna sigri.
Leikmenn Baylor Bears fagna sigri. AFP

Baylor Bears varð í nótt háskólameistari karla í körfuknattleik í bandarísku háskólaíþróttunum NCAA en Baylor-háskólinn er staðsettur í Texas. 

Baylor Bears sigraði Gonzaga Bulldogs, 86:70, í úrslitaleiknum í Indianapolis en lið Gonzaga hafði unnið alla leikina á tímabilinu þegar kom að úrslitaleiknum. Liðið vann þrjátíu og einn leik en tapaði einum á tímabilinu. 

Var þetta í fyrsta skipti sem Baylor University vinnur keppnina. Úrslitakeppnin er geysilega vinsælt sjónvarpsefni í Bandaríkjunum en gert er ráð fyrir að á milli 15 og 20 milljónir manna hafi fylgst með leiknum í nótt. 

Þrátt fyrir takmarkanir vegna sóttvarna gátu einhverjir stuðningsmenn liðanna sótt …
Þrátt fyrir takmarkanir vegna sóttvarna gátu einhverjir stuðningsmenn liðanna sótt leikinn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert