Porzingis í fluggír í sigri Dallas

Kristaps Porzingis átti góðan leik í nótt.
Kristaps Porzingis átti góðan leik í nótt. AFP

Lettinn knái Kristaps Porzingis náði tvöfaldri tvennu og lék afar vel í sigri Dallas Mavericks gegn Milwaukee Bucks í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Porzingis gerði 26 stig og tók 17 fráköst í 116:101 sigri Dallas. Liðsfélagi hans, Slóveninn Luka Doncic, átti sömuleiðis góðan leik og var stigahæstur í leiknum með 27 stig, auk þess að taka níu fráköst og gefa níu stoðsendingar.

Maður næturinnar var þó Chris Boucher í liði Toronto, en hann náði tvöfaldri tvennu þar sem hann skoraði 38 stig og tók 19 fráköst í 113:122 tapi liðsins gegn Chicago Bulls.

Fimm leikir til viðbótar fóru fram í NBA-deildinni í nótt.

Öll úrslit næturinnar:

Dallas – Milwaukee 116:101

Toronto – Chicago 113:122

Miami – LA Lakers 110:104

Oklahoma – Cleveland 102:129

Utah – Portland 122:103

LA Clippers – Phoenix 113:103

Sacramento – Detroit 101:113

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert