Meistararnir sannfærandi

Andre Drummond.
Andre Drummond. AFP

Meistaralið Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfuknattleik vann öruggan 126:101-sigur á Brooklyn Nets er liðin mættust í nótt.

Andre Drummond var atkvæðamestur meistaranna með 20 stig ásamt því að taka 11 fráköst en Kevin Durant var stigahæstur hjá Brooklyn með 22 stig. Lykilmaðurinn Kyrie Irving var búinn að skora 18 stig fyrir heimamenn þegar hann var rekinn úr húsi í fyrsta sinn á ferlinum og var það ekki til að hjálpa liði Brooklyn sem er þó enn í fyrsta sæti austurdeildarinnar.

Los Angeles er í 5. sæti vesturdeildarinnar en toppliðið þar, Utah Jazz, vann 128:112-sigur á Sacramento Kings þar sem Donovan Mitchell lék á als oddi, skoraði 42 stig.

Úrslitin í nótt
Brooklyn - LA Lakers 101:126
Oklahoma - Philadelphia 93:117
Utah Jazz - Sacramento 128:112
Golden State - Houston 125:109
Phoenix - Washington 134:106
Portland - Detroit 118:103
Cleveland - Toronto 115:135

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert