Elvar einn sá atkvæðamesti

Elvar Már Friðriksson gerir það gott á sínu fyrsta tímabili …
Elvar Már Friðriksson gerir það gott á sínu fyrsta tímabili í Litháen. Ljósmynd/Sveinn Helgason

Elvar Már Friðriksson er einn atkvæðamesti leikmaðurinn í efstu deildinni í körfuknattleiknum í Litháen á sínu fyrsta tímabili í deildinni.

Eins og fram kom á mbl.is átti Elvar magnaðan leik á miðvikudag og hitti úr öllum skotunum. Skoraði hann 33 stig og fékk 51 í framlag.

Elvar er hæstur allra þegar kemur að framlagi í vetur en á bak við hana er heildarframmistaða í leikjum. Elvar er einnig með flestar stoðsendingar og þriðji í stigaskorun að meðaltali. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert