Haukar upp að hlið Keflavíkur

Sara Rún Hinriksdóttir reif niður 14 fráköst fyrir Hauka og …
Sara Rún Hinriksdóttir reif niður 14 fráköst fyrir Hauka og Fjölniskonur rufu 100 stiga múrinn gegn KR. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Haukar fóru upp að hlið Keflavíkur í Dominos-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld með sigri 67:63 þegar liðin mættust á Ásvöllum í Hafnarfirði. 

Erfitt er að segja til um hvernig leikirnir munu raðast niður í úrslitakeppninni en Valur, Haukar, Keflavík og Fjölnir munu hafna í fjórum efstu sætunum. Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn í gær og Fjölnir er tveimur stigum á eftir Haukum og Keflavík með 26 stig þegar ein umferð er eftir. 

Fjölnir rauf 100 stiga múrinn gegn KR í kvöldi, liðinu sem er fallið niður í næstefstu deild. Fjölnir vann 105:67 í Grafarvogi. 

Þá vann Breiðablik sigur gegn Skallagrími 82:72 í Smáranum. 

Í lokaumferðinni eigast við: Snæfell - Breiðablik, Keflavík - Valur, Skallagrímur - Fjölnir og KR - Haukar. 

Breiðablik - Skallagrímur 82:72

Smárinn, Dominos deild kvenna, 05. maí 2021.

Gangur leiksins:: 10:5, 14:9, 18:13, 18:15, 21:19, 27:27, 31:28, 36:37, 43:39, 45:42, 49:45, 56:52, 58:57, 62:61, 73:63, 82:72.

Breiðablik: Jessica Kay Loera 28/6 fráköst/7 stoðsendingar, Iva Georgieva 19/8 fráköst, Isabella Ósk Sigurðardóttir 13/15 fráköst, Sóllilja Bjarnadóttir 10/6 fráköst, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir 7, Birgit Ósk Snorradóttir 3, Eyrún Ósk Alfreðsdóttir 2/4 fráköst.

Fráköst: 31 í vörn, 10 í sókn.

Skallagrímur: Keira Breeanne Robinson 20/11 fráköst/6 stoðsendingar, Embla Kristínardóttir 18/9 fráköst, Sanja Orozovic 16/7 fráköst, Nikita Telesford 10/8 fráköst, Ingibjörg Rósa Jónsdóttir 5, Maja Michalska 3.

Fráköst: 26 í vörn, 14 í sókn.

Dómarar: Friðrik Árnason, Sigurður Jónsson, Guðmundur Ragnar Björnsson.

Áhorfendur: 50

Fjölnir - KR 105:67

Dalhús, Dominos deild kvenna, 05. maí 2021.

Gangur leiksins:: 7:5, 16:12, 26:15, 28:17, 32:24, 37:29, 46:36, 59:41, 63:46, 67:49, 71:53, 78:55, 85:57, 93:59, 99:63, 105:67.

Fjölnir: Lina Pikciuté 22/6 fráköst, Ariel Hearn 21/10 fráköst/10 stoðsendingar, Sigrún Björg Ólafsdóttir 12/4 fráköst, Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir 11, Sara Carina Vaz Djassi 11/7 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 8/4 fráköst, Fanney Ragnarsdóttir 7, Emma Hrönn Hákonardóttir 5, Diljá Ögn Lárusdóttir 2, Hulda Ósk Bergsteinsdóttir 2, Heiða Hlín Björnsdóttir 2/5 stoðsendingar, Margret Osk Einarsdottir 2/6 fráköst/5 stoðsendingar.

Fráköst: 30 í vörn, 15 í sókn.

KR: Annika Holopainen 19/6 fráköst, Taryn Ashley Mc Cutcheon 13/6 fráköst, Eygló Kristín Óskarsdóttir 12/6 fráköst, Perla Jóhannsdóttir 11/6 fráköst, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir 6, Helena Haraldsdóttir 4, Hera Sigrún Ásbjarnardóttir 2.

Fráköst: 20 í vörn, 6 í sókn.

Dómarar: Gunnlaugur Briem, Jakob Árni Ísleifsson, Bjarki Þór Davíðsson.

Haukar - Keflavík 67:63

Ásvellir, Dominos deild kvenna, 05. maí 2021.

Gangur leiksins:: 5:5, 10:11, 12:14, 12:16, 15:19, 19:20, 22:20, 29:20, 33:23, 38:28, 47:33, 53:35, 57:40, 59:47, 61:51, 67:63.

Haukar: Alyesha Lovett 25/10 fráköst/5 stoðsendingar, Sara Rún Hinriksdóttir 17/14 fráköst, Lovísa Björt Henningsdóttir 8/5 fráköst, Elísabeth Ýr Ægisdóttir 4/8 fráköst, Þóra Kristín Jónsdóttir 4/5 fráköst, Rósa Björk Pétursdóttir 4, Bríet Sif Hinriksdóttir 3/4 fráköst, Eva Margrét Kristjánsdóttir 2.

Fráköst: 33 í vörn, 18 í sókn.

Keflavík: Daniela Wallen Morillo 22/12 fráköst, Agnes María Svansdóttir 11, Anna Lára Vignisdóttir 11/4 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 6, Anna Ingunn Svansdóttir 5/4 fráköst, Katla Rún Garðarsdóttir 3, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 3/6 fráköst/4 varin skot, Ólöf Rún Óladóttir 2.

Fráköst: 23 í vörn, 10 í sókn.

Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson, Davíð Kristján Hreiðarsson, Sigurbaldur Frimannsson.

Áhorfendur: 100

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert