Karlalandsliðið fer til Svartfjallalands

Haukur Helgi Pálsson í leik Íslands og Portúgals í fyrstu …
Haukur Helgi Pálsson í leik Íslands og Portúgals í fyrstu umferð forkeppninnar. mbl.is/Hari

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik fer til Svartfjallalands í ágúst en þar verður leikinn riðillinn í forkeppni heimsmeistaramótsins 2023.

Dregið var í riðlana í apríl og Ísland lenti þá í E-riðli með Svartfjallalandi og Danmörku. Tvö liðanna komast áfram í sjálfa undankeppni HM en ljóst er að mjög erfitt verkefni bíður íslenska liðsins gegn tveimur sterkum andstæðingum.

Keppt verður í Podgorica, höfuðborg Svartfjallalands, dagana 12. til 18. ágúst, en FIBA staðfesti í dag hvar riðlarnir yrðu leiknir. Leikin er tvöföld umferð og því fjórir leikir á dagskrá hjá íslenska liðinu á þessum sjö dögum.

Svíar, Portúgalar og Austurríkismenn leika í Matosinhos í Portúgal.

Rúmenar, Lettar og Hvít-Rússar leika í Riga í Lettlandi.

Norður-Makedóníumenn, Svisslendingar og Slóvakar leika í Skopje í Norður-Makedóníu.

Í þessum fjórum riðlum er leikið um síðustu átta sætin í undankeppni HM  2023 en alls leika 32 þjóðir í átta riðlum undankeppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert