Philadelphia tók forystuna gegn Atlanta

Joel Embiid fór mikinn fyrir Philadelphia 76ers í nótt.
Joel Embiid fór mikinn fyrir Philadelphia 76ers í nótt. AFP

Joel Embiid átti stórleik fyrir Philadelphia 76ers þegar liðið vann 127:111-sigur gegn Atlanta Hawks í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfuknattleik í Atlanta nótt.

Embiid skoraði 27 stig, tók níu fráköst og gaf átta stoðsendingar en Philadelphia leiðir nú 2:1 í einvíginu.

Þá skoraði Devin Booker 28 stig fyrir Phoenix Suns þegar liðið komst í 3:0 í einvígi sínu gegn Denver Nuggets í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í Denver.

Úrslit næturinnar í NBA:

Atlanta Hawks 111:127 Philadelphia 76ers, staðan er 2:1 fyrir Philadelphia.

Denver Nuggets 102:116 Phoenix Suns, staðan er 3:0 fyrir Phoenix.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert