Körfuknattleiksdeild Hauka hefur gengið frá ráðningu á Máté Dalmay og tekur hann við karlaliði félagsins. Haukar féllu úr efstu deild í vetur.
Máté kemur til Hauka frá Hamri þar sem hann hefur síðustu tvö ár verið nálægt því að koma liðinu upp í efstu deild. Þar á undan þjálfaði hann Gnúpverja.
Máté tekur við Haukum af Sævaldi Bjarnasyni sem lét af störfum eftir að honum mistókst að halda Haukum í efstu deild.