Ægir atkvæðamestur í Eistlandi

Ægir Þór Steinarsson var stigahæstur.
Ægir Þór Steinarsson var stigahæstur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eistland og Ísland mættust í vináttuleik í körfuknattleik karla í Eistlandi í dag. Ekki var um opinberan landsleik að ræða en liðin mætast hins vegar aftur á morgun í vináttulandsleik. 

Eistland hafði betur 91:79 samkvæmt upplýsingum á samfélagsmiðlum KKÍ. Margir af atvinnumönnum Íslands eru ekki með í ferðinni en gætu verið með í ágúst þegar Ísland leikur í forkeppni HM. 

Ægir Þór Steinarsson var atkvæðamestur. Skoraði hann 14 stig og gaf 4 stoðsendingar. Elvar Már Friðriksson skoraði 13 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert