Maður leiksins í Belgíu

Elvar Már Friðriksson fer vel af stað með Antwerp.
Elvar Már Friðriksson fer vel af stað með Antwerp. Ljósmynd/FIBA

Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson var maður leiksins er hann og liðsfélagar hans í Antwerp Giants unnu 83:65-sigur á Spirou Charleroi í belgísku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Elvar, sem kom til Antwerp frá Siauliai í Litháen fyrir þetta tímabil, var stigahæstur í sínu liði með 13 stig og þá tók hann einnig flest fráköst eða sjö. Leikstjórnandinn bætti við tveimur stoðsendingum en hann lék mest allra í sínu liði, rúma 31 mínútu.

Antwerp hefur farið vel af stað á leiktíðinni en liðið vann 81:72-sigur á Limburg í fyrstu umferð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert