Tryggvi með níu stig í sigri

Tryggvi Snær Hlinason í leik með íslenska landsliðinu
Tryggvi Snær Hlinason í leik með íslenska landsliðinu Ljósmynd/FIBA

Tryggvi Snær Hlinason var með níu stig þegar lið hans, Zaragoza sigraði Breogan 79:75 í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í dag.

Ásamt því að skora níu stig tók Tryggvi einnig fimm fráköst en hann spilaði rúmlega 20 mínútur.

Zaragoza eru í 13. sæti deildarinnar eftir sjö leiki með þrjá sigra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert