Helena alvarlega meidd?

Helena Sverrisdóttir gæti verið alvarlega meidd.
Helena Sverrisdóttir gæti verið alvarlega meidd. mbl.is/Árni Sæberg

Bjarni Magnússon, þjálfari Subway-deildar liðs Hauka í körfuknattleik sagði frá því í viðtali við karfan.is eftir leik við Grindavík í kvöld að meiðsli Helenu Sverrisdóttur litu ekki vel út.

Helena spilaði einungis átta mínútur í leiknum í kvöld áður en hún lauk leik vegna meiðsla.

„Þetta lítur ekkert rosalega vel út. Við þurfum bara að bíða og sjá, hún er búin að eiga í hnémeiðslum undanfarið, eitthvað liðþófatengt. Ég þarf að fá upplýsingar á eftir, þetta lítur ekki vel út allavega.“

Ljóst er að það væri mikil blóðtaka fyrir Hauka ef Helena verður lengi frá. Bæði er liðið í harðri baráttu í Subway-deildinni ásamt því að vera í riðlakeppni Evrópubikarsins.

Frétt karfan.is má sjá hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert