Breytingar í Borgarnesi

Maja Michalska er fyrirliði Skallagríms.
Maja Michalska er fyrirliði Skallagríms. mbl.is/Kristinn Magnússon

Goran Miljevic hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Skallagríms í körfuknattleik og stýrði liðinu í síðasta sinn í kvöld. 

Stjórn körfuknattleiksdeildar Skallagríms og Goran Miljevic hafa komst að samkomulagi um að hann láti af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna.

„Stjórn körfuknattleiksdeildarinnar þakkar Goran Miljevic fyrir gott samstarf og sitt framlag til Skallagríms,“ segir í stuttri tilkynningu frá Skallagrími í kvöld. 

Skallagrímur hefur tapað fyrstu sex leikjunum í Subway-deildinni í haust og er liðið því á botninum án stiga. Í kvöld fékk liðið slæman skell á heimavelli gegn Njarðvík 31:86. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert