Evrópuleikur í Hafnarfirði í kvöld

Bríet Hinriksdóttir sækir að körfu Brno fyrr í keppninni.
Bríet Hinriksdóttir sækir að körfu Brno fyrr í keppninni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Haukar taka á móti hinu sterka franska liði Tarbes í Ólafssal á Ásvöllum í kvöld í EuroCup keppni kvenna í körfuknattleik. 

Leikurinn verður síðasti heimaleikur Hauka í keppninni á þessu tímabili en liðið vann sig inn í riðlakeppni EuroCup í upphafi tímabilsins. Leikur liðið þrjá leiki heima og þrjá erlendis í riðlakeppninni. 

Tarbes sigraði 66:53 þegar liðin mættust í Frakklandi fyrr í haust. Franska liðið vann öruggan sigur á Brno frá Tékklandi í síðasta leik í keppninni í byrjun nóvember en Haukar hafa tapað fyrstu fjórum leikjunum í keppninni en andstæðingarnir eru allir mun hærra skrifaðir en íslensk félagslið. Tarbes hefur hins vegar unnið fyrstu fjóra og á góða möguleika á að vinna riðilinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert