Kevin Porter Jr. átti stórleik fyrir Houston Rockets þegar liðið vann nokkuð þægilegan 102:89-heimasigur gegn Oklahoma City Thunder í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
Porter skoraði 11 stig, gaf ellefu stoðsendingar og tók tíu fráköst og náði þar með sinni fyrstu þrennu í deildinni.
Liðsfélagar hans voru meðvitaðir um það að Porter væri nálægt þrennunni þegar líða fór á leikinn og hjálpuðu honum að ná síðasta frákasti sínu í leiknum.
Sjálfur virtist Porter ekki vera kveikja á því að frákastið myndi skila honum tvöfaldri þrennu en því var svo fagnað vel og innilega þegar hann loksins greip boltann af gólfinu.
Þrátt fyrir gott gengi Porters í nótt hefur Houston verið í basli á tímabilinu en liðið er í fimmtánda og neðsta sæti vesturdeildarinnar með fjóra sigra í tuttugu leikjum.
best play of the night: Rockets players demand Kevin Porter Jr. come get the rebound before it goes out of bounds so he can record his first ever triple-double. tremendous work environment. pic.twitter.com/rrJmgTGhsG
— Rob Perez (@WorldWideWob) November 30, 2021