Áttundi sigur meistaranna í röð

Giannis Antetokounmpo fór á kostum í nótt gegn Charlotte.
Giannis Antetokounmpo fór á kostum í nótt gegn Charlotte. AFP

Giannis Anetokounmpo átti stórleik fyrir meistara Milwaukee Bucks þegar liðið vann nauman sigur gegn Charlotte Hornets í NBA-deildinni í körfuknattleik í Milwaukee í nótt.

Anetokounmpo skoraði 40 stig, tók tólf fráköst og gaf níu stoðsendingar en leiknum lauk með 127:125-sigri Milwaukee.

Þetta var áttundi sigurleikur liðsins í röð en Milwaukee er í þriðja sæti austurdeildarinnar með fjórtán sigra og átta töp eftir fyrstu 22 leikina.

Úrslit næturinnar í NBA:

Indiana – Atlanta 111:114
Orlando – Denver 108:103
Washington – Minnesota 115:107
Boston – Philadelphia 88:87
Miami – Cleveland 85:111
Milwaukee – Charlotte 127:125
New Orleans – Dallas 107:139
Oklakoma – Houston 110:114
LA Clippers – Sacramento 115:124

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert