Martin smitaðist af kórónuveirunni

Martin Hermannsson í sigurleiknum gegn Hollandi í nóvember.
Martin Hermannsson í sigurleiknum gegn Hollandi í nóvember. Ljósmynd/FIBA

Martin Hermannsson, snjallasti körfuknattleiksmaður landsins, smitaðist á dögunum af kórónuveirunni og var af þeim sökum ekki með Valencia þegar liðið vann Bursaspor 86:68 í Evrópubikarnum í kvöld.

Annar leikmaður liðsins er einnig smitaður. Martin sagði mbl.is stuttlega frá stöðu mála í kvöld.

Hann veiktist lítið sem ekkert í kjölfar smitsins og bíður nú einfaldlega eftir því að fá neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku til að geta spilað með liðinu á ný. 

Segist Martin hafa verið við æfingar einn síns liðs síðustu þrjá daga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert