Njarðvíkingurinn stigahæstur og í undanúrslit

Elvar Már Friðriksson er kominn í undanúrslit.
Elvar Már Friðriksson er kominn í undanúrslit. Ljósmynd/FIBA

Antwerp Giants tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum belgíska bikarnum í körfubolta með 90:89-heimasigri á Mechelen. Antwerp vann fyrri leikinn 117:77 og einvígið samanlagt 207:166.

Elvar Már Friðriksson átti góðan leik fyrir Antwerp og var stigahæstur á vellinum með 15 stig. Þá tók hann einnig tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar á aðeins tæplega 19 mínútum.

Antwerp hefur í þrígang orðið belgískur bikarmeistari, síðast árið 2020.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert