Þó enn séu tæpir tveir tímar í að oddaleikur Vals og Tindastóls um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattlek hefjist er þegar komin löng röð fyrir utan Hlíðarenda.
Þar má sjá spennta stuðningsmenn beggja liða bíða þess með óþreyju að verða hleypt inn í húsið og síðan inn í íþróttasalinn þar sem flautað verður til leiks klukkan 20.15.
Ljósmyndari mbl.is er mættur á staðinn og tók þessa mynd rétt í þessu.