Martin öflugur er Valencia jafnaði metin

Martin Hermannsson skoraði 16 stig fyrir Valencia.
Martin Hermannsson skoraði 16 stig fyrir Valencia. Ljósmynd/FIBA

Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, átti flottan leik í liði Valencia þegar liðið vann góðan 89:82-sigur á Baskonia í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar um spænska meistaratitilinn í körfuknattleik karla í dag.

Martin skoraði 16 stig, tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á tæpum 23 mínútum í dag.

Baskonia vann fyrsta leik liðanna með minnsta mun og staðan í einvíginu því 1:1.

Aðeins þarf tvo sigra til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitunum og verður því um oddaleik að ræða í þriðja leik liðanna í Valencia í næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert