LeBron James á Íslandi

LeBron James er staddur á Íslandi.
LeBron James er staddur á Íslandi. AFP

LeBron James, einn besti körfuboltamaður allra tíma, er staddur á Íslandi þessa stundina ásamt eiginkonu sinni. Ekki er víst hvar James mun gista á meðan á dvöl hands á Íslandi stendur.

Karfan.is greinir frá. James er sem stendur í sumarfríi, en hann og liðsfélagar hans í Los Angeles Lakers komust ekki í úrslitakeppnina í NBA-deildinni á nýliðinni leiktíð.

James er einn besti leikmaðurinn í sögu deildarinnar og hefur í fjórgang verið í sigurliði í NBA, síðast með Lakers árið 2020. Þá hefur hann einnig fjórum sinnum verið valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar og fjórum sinnum verið valinn besti leikmaður deildarinnar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert