Efnilegur leikmaður áfram í Hveragerði

Haukur Davíðsson og Kristinn formaður Hamars.
Haukur Davíðsson og Kristinn formaður Hamars. Ljósmynd/Hamar

Körfuknattleiksmaðurinn Haukur Davíðsson hefur framlengt samning sinn við Hamar í Hveragerði um eitt ár. 

Haukur er efnilegur leikmaður sem fékk stórt hlutverk í liði Hamars á síðasta tímabili þrátt fyrir ungan aldur. Hann skilaði fjórum stigum, einni stoðsendingu og tók tvö fráköst að meðaltali í leik en hann lék 26 leiki fyrir Hamar á síðasta tímabili.  

„Haukur tók miklum framförum á síðasta tímabili. Hnn er uppalinn Hamarsmaður sem á framtíðina fyrir sér og við erum ánægð með að halda honum í okkar röðum,“ sagði félagið í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert