Breiðablik hefur ráðið Yngva Gunnlaugsson sem þjálfara kvennaliðsins í körfuknattleik til tveggja ára. Liðið leikur í úrvalsdeildinni og endaði í næst neðsta sæti á nýliðnu tímabili.
Yngvi er reynslumikill þjálfari sem hefur bæði þjálfað lið í efstu deild og í neðri deildum auk þess að hafa þjálfað yngri landslið Íslands.
Hann gerði kvennalið Hauka Íslandsmeisturum árið 2009.
Breiðablik segir í tilkynningu:
„Mikil ánægja ríkir með ráðninguna hjá báðum aðilum og nú er unnið hörðum höndum við að styrkja liðið fyrir átök vetrarins svo að liðið nái að gera alvöru atlögu að úrslitakeppnissæti á næstu leiktíð.
Síðasta tímabil var mikið meiðslatímabil þar sem liðið náði fáum leikjum með fullt lið en náði að komast í bikarúrslit og sýndi einnig að þegar liðið er fullskipað þá getur það unnið öll lið í deildinni og er því bjartsýni fyrir næsta tímabil hjá félaginu. Við erum að fá reynslumikinn þjálfara í okkar raðir sem mun hjálpa okkur í þeirri uppbygginu sem félagið hefur verið í síðustu ár.“