Portúgölsk landsliðskona til Íslandsmeistaranna

Hin portúgalska Lavína Da Silva og stöllur hjá Íslandsmeisturum Njarðvíkur …
Hin portúgalska Lavína Da Silva og stöllur hjá Íslandsmeisturum Njarðvíkur hafa samið löndu hennar, Raquel Laneiro. Eggert Jóhannesson

Portúgalska landsliðskonan Raquel Laneiro hefur samið við Íslandsmeistara Njarðvíkur í körfuknattleik kvenna fyrir komandi leiktímabil. 

Laneiro er 22 ára gamall leikstjórnandi sem hefur verið í og við portúgalska landsliðið og U23-ára lið Portúgala og kemur frá Sportiva í heimalandinu.

Laneiro þekkir vel til Lavínu Silva, leikmanns Njarðvíkur sem nýverið framlengdi samning sinn við Njarðvík, og hafa þær verið saman í portúgalska landsliðshópnum.

Þá lék hún einnig eitt tímabil með Aliyuh Collier, sem verður einnig áfram hjá Njarðvík á næsta tímabili, hjá Sportiva tímabilið 2019/2020.

Laneiro lék auk þess með Sportiva gegn Haukum á síðasta tímabili í EuroCup.

„Ég er rosalega spenntur að vinna með Raquel og tel að hún komi með fullt af hlutum að borðinu sem muni nýtast okkur vel. Hún er góður skotmaður og er vön að spila svona „combo“ bakvarðarstöðu þó við sjáum hana mest taka stöðu leikstjórnanda hjá okkur.

Hún er einnig mjög dugleg varnarlega og það er mikilvægt því við munum halda áfram að leggja áherslu á að vera besta varnarlið deildarinnar,“ sagði Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, í samtali við UMFN.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert