Akureyringar styrkja sig

Traojae Barke.
Traojae Barke. Ljósmynd/Þór

Þór Akureyri hefur fengið til liðs við sig bandaríska körfuknattleiksmanninn Tarojae Brake sem mun leika með liðinu á komandi tímabili í 1. deildinni. 

Brake er 25 ára gamall leikstjórnandi sem er 190 sentímetrar á hæð. Á síðustu leiktíð skilaði hann 16.7 stigum, tók 6 fráköst og gaf fjórar stoðsendingar að meðaltali í leik í bandarísku TBL deildinni. 

Það var fyrsta leiktíð hans í atvinnumennsku en tímabilið 2020 - 2021 lék hann með Saint Peter´s í bandaríska háskólaboltanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert