Hanna tilnefnd sem kona ársins

Hanna Þráinsdóttir er úr Hafnarfirði.
Hanna Þráinsdóttir er úr Hafnarfirði. Ljósmynd/GCU Lions

Hanna Þráinsdóttir, fyrrum leikmaður Georgian Court Lions í bandaríska háskólakörfuboltanum, hefur verið tilnefnd sem kona ársins.

Önnur deild í bandaríska NCAA háskólaboltanum veitir árlega verðlaun til konu ársins en þetta árið er Hanna ein 39 tilnefndra í annarri deildinni í 17 íþróttagreinum.

Hanna kom til Georgian Court fyrir tímabilið 2018 og lauk hún því fjögurra ára veru sinni með skólanum síðastliðið vor. Hún var á tímanum fyrirliði liðsins og skilaði mest 9 stigum, 7 fráköstum, stoðsendingu og vörðu skoti að meðaltali í leik tímabilið 2020-21.

NCAA mun tilkynna hvaða 30 konur eru efstar í kjörinu í október. Nefnd mun síðan velja þrjár konur úr hverri deild háskólaboltans. Af þeim 9 tilnefndu sem þar eru eftir mun nefnd NCAA síðan velja hver er kona ársins í janúar 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert