Öruggur sigur Íslands á Sviss

Birkir Eyjólfsson var atkvæðamestur í Íslenska liðinu í dag.
Birkir Eyjólfsson var atkvæðamestur í Íslenska liðinu í dag. Ljósmynd/FIBA

Körfuboltalandslið Íslands skipað leikmönnum 16 ára og yngri vann Sviss 86:64 á Evrópumótinu í Búlgaríu í öðrum leik liðsins á mótinu.

Í fyrsta leik strákanna í gær unnu þeir öruggan sigur á Lúxemborg en sá leikur fór 90:49. Í dag unnu þeir aftur öruggan sigur þar sem liðið var mest með 41 stiga forskot.

Í lok fyrsta leikhluta stóðu liðin jöfn og Sviss hélt í þá fram af hálfleik og aðeins sex stig skildu liðin að þá. Í seinni hálfleik tók Ísland öll völd og Sviss átti ekki möguleika.

Birkir Eyjólfsson átti frábæran leik og var atkvæðamestur með 28 stig og 11 fráköst. Næstur honum kom Viktor Lúðvíksson með 12 stig og 11 fráköst. Ásmundur Árnason skilaði 12 stigum og 2 fráköstum og Birgir Halldórsson var með 11 stig og 3 fráköst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert