„Munum koma fólki á óvart“

ÍR-ingar fagna eftir að sæti í úrvalsdeild var í höfn …
ÍR-ingar fagna eftir að sæti í úrvalsdeild var í höfn í apríl síðastliðnum. mbl.is/Árni Sæberg

Jamie Cherry, bandarískur leikmaður kvennaliðs ÍR í körfuknattleik, segir að liðið, sem er nýliði í úrvalsdeildinni, Subway-deildinni, á komandi tímabili muni koma á óvart á því.

Kvennalið ÍR lék síðast í efstu deild tímabilið 2003/2004 og var liðinu fyrir tímabilið, sem hófst í gær, spáð áttunda og neðsta sæti, fallsæti, af bæði félögunum og fjölmiðlum á kynningarfundi deildarinnar í síðustu viku.

„Við höfum það nokkuð gott. Við erum að bæta okkur á hverjum degi og þurfum þess sannarlega með þar sem við erum nýliðar í deildinni.

Við erum komin í efstu deild í fyrsta skipti í langan tíma og tökum einn dag í dag í einu í viðleitni til þess að bæta okkur,“ sagði Cherry í samtali við mbl.is á fundinum fyrir viku síðan.

Ætlum að afsanna þessa spá

Hún sagði spána ekki koma ÍR-ingum á óvart en að liðið væri staðráðið í að halda sæti sínu í deildinni.

„Við ætlum auðvitað að afsanna þessa spá. Þetta er eðlilegt þar sem við erum nýliðar en við munum pottþétt koma mörgu fólki á óvart.

Við notum þetta vitanlega til þess að hvetja okkur til dáða og bæta okkur á hverjum degi. Þetta verður gott og skemmtilegt tímabil.“

Spurð hvað ÍR þyrfti að gera til þess að sjá til þess að halda sæti sínu í deild þeirra bestu sagði Cherry að lokum:

„Við þurfum svo sannarlega að leggja hart að okkur á hverjum degi og leggja á okkur vinnuna. Á hverjum degi tökum við skref áfram.

Þar sem við erum ný í deildinni erum við að fá tilfinningu fyrir henni og fikra okkur áfram. Við ætlum að reyna að bæta okkur daglega og halda áfram.“

ÍR sækir Hauka heim á Ásvelli í 1. umferð Subway-deildarinnar í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert