Átti fínan sprett en Münster tapaði í framlengingu

Hilmar Pétursson.
Hilmar Pétursson. mbl.is/Arnþór Birkisson

Bakvörðurinn Hilm­ar Pét­urs­son spilaði 20 mínútur í 88:81 tapi Mün­ster gegn Phoenix Hagen í fyrstu umferð í næstefstu deild í þýska körfuboltanum í dag.

Hilmar skoraði átta stig og var að auki með tvö fráköst og tvær stoðsendingar.

Staðan var hnífjöfn, 75:75, eftir fjóra leikhluta og fór viðureignin því í framlengingu þar sem heimamenn í Phoenix skoruðu 13 stig gegn 6 stigum gestanna.

Gestirnir voru með yfirhöndina alveg fram að fjórða leikhluta en þá tókst heimamönnum að vinna upp fjögurra stiga forskot Mün­ster og unnu að lokum í framlengingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert