Meistararnir styrkja sig

Nýjasti leikmaður Vals lyfti bikar með liðinu á sunnudag.
Nýjasti leikmaður Vals lyfti bikar með liðinu á sunnudag. mbl.is/Óttar Geirsson

Körfuknattleiksdeild Vals hefur samið við Króatann Ozran Pavlovic og mun hann leika með Íslandsmeisturunum á komandi tímabili. 

Pavlovic er 28 ára Króati sem kemur til Vals frá Sokoli í Tékklandi. Hann hefur einnig leikið í Bosníu og heimalandinu á tæplega áratuga ferli sem atvinnumaður.

Leikmaðurinn lék sinn fyrsta leik með Val í Meistarakeppni KKÍ á sunnudag er hann skoraði 14 stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar í 80:77-sigri á Stjörnunni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert