Elvar góður í Grikklandi

Elvar Már Friðriksson.
Elvar Már Friðriksson. mbl.is/Óttar Geirsson

Elvar Már Friðriksson landsliðsmaður í körfuknattleik átti góðan leik í Grikklandi í kvöld þegar lið hans, Rytas frá Litháen, vann þar mikilvægan útisigur á Peristeri í Meistaradeild FIBA, 82:71.

Elvar lék í rúmar 18 mínútur en var samt næststigahæstur hjá Rytas með 12 stig. Hann átti auk þess fimm stoðsendingar og tók tvö fráköst.

Rytas náði með sigrinum Peristeri að stigum en bæði lið eru með 4 stig úr 4 leikjum þegar tvær umferðir eru eftir. Tenerife frá Spáni er efst með 6  stig en Bnei Herzliya frá Ísrael er neðst með tvö stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert