Eistinn farinn frá KR

Saimon Sutt stoppaði stutt hjá KR.
Saimon Sutt stoppaði stutt hjá KR. Ljósmynd/KR

Körfuknattleiksdeild KR hefur sagt upp samningi sínum við Saimon Sutt og leikur hann því ekki fleiri leiki fyrir karlalið félagsins.

Sutt gekk ekki vel í treyju Vesturbæjarfélagsins þar sem hann skilaði aðeins 1,5 stigum, 1,8 fráköstum og 1,5 stoðsendingum að meðaltali í leikjunum fjórum sem hann lék fyrir liðið á tímabilinu.

Eistinn samdi við KR í september síðastliðnum og stoppaði því stutt hér á landi.

„Við þökkum Saimon fyrir hans framlag til félagsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert