Finnur ekki á hliðarlínunni í kvöld – sonurinn með flogaveiki

Finnur Freyr Stefánsson er kominn í leyfi frá Val.
Finnur Freyr Stefánsson er kominn í leyfi frá Val. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari karlaliðs Vals í körfubolta, verður ekki á hliðarlínunni er liðið mætir Keflavík í Subway-deildinni í kvöld.

Er Finnur kominn í leyfi til að sinna ungum syni sínum, sem greindist með flogaveiki á dögunum. Í stað Finns verður Ágúst Björgvinsson, fyrrverandi þjálfari liðsins, á hliðarlínunni.

„Ég er kominn í leyfi frá vinnu vegna fjölskylduaðstæðna. Litli guttinn minn greindist með flogaveiki á dögunum,“ skrifaði Finnur og hélt áfram:

„Þetta eru fyrstu kynni mín af þessum flókna og erfiða sjúkdómi. Gæti verið verra en gæti líka verið betra. Hugur minn er hjá öllum þeim sem hafa þurft að glíma við þetta á einn eða annan hátt. Vil benda þeim sem vilja eða vantar fræðslu á Lauf samtökin, www.lauf.is. Þakkir til Vals fyrir skilninginn og til allra sem hafa sent okkur kveðjur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert