Aftur unnu Doncic og félagar glæstan sigur

Luka Doncic sækir að Aaron Gordon í nótt.
Luka Doncic sækir að Aaron Gordon í nótt. AFP/Justin Tafoya

Slóvenski snillingurinn Luka Doncic og liðsfélagar hans hjá Dallas Mavericks unnu glæsilegan 116:115-útisigur á Denver Nuggets í NBA-deildinni í körfubolta í Bandaríkjunum í nótt.

Dallas vann Phoenix Suns, topplið Vesturdeildarinnar, í síðasta leik og fagnaði öðrum góðum sigri í nótt, en Denver hefur átt góðu gengi að fagna á leiktíðinni, á meðan Dallas er að koma til eftir erfiða byrjun.

Tim Hardaway Jr. var stigahæstur hjá Dallas með 29 stig. Doncic skoraði 22, tók 10 fráköst og gaf 12 stoðsendingar. Aaron Gordon skoraði 27 stig fyrir Denver.

Donovan Mitchell fór á kostum fyrir Cleveland Cavaliers í 116:102-heimasigri á Los Angeles Lakers. Mitchell skoraði 43 stig og sá til þess að Cleveland fór upp í þriðja sæti Austurdeildarinnar.

Anthony Davis lék aðeins níu mínútur með Lakers og það reyndist liðinu erfitt, þar sem hann hefur verið besti leikmaður fjólubláa og gulllitaða liðsins úr Englaborginni á tímabilinu.

Þá vann Detroit Pistons 116:96-útisigur á Miami Heat, en bæði lið eru neðarlega í Austurdeildinni. Bojan Bogdanovic skoraði 31 stig fyrir Detroit og Tyler Herro 34 fyrir Miami.

Úrslit næturinnar í NBA-körfuboltanum:
Cleveland Cavaliers – Los Angeles Lakers 116:102
Miami Heat – Detroit Pistons 96:116
Denver Nuggets – Dallas Mavericks 115:116

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert