Þóra drjúg í enn einum sigrinum

Þóra Kristín Jónsdóttir í landsleik með Íslandi.
Þóra Kristín Jónsdóttir í landsleik með Íslandi. mbl.is/Óttar Geirsson

Þóra Kristín Jónsdóttir var að vanda drjúg í átta stiga sigri AKS Falcon á Herlev, 70:62, í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. 

Þóra setti 16 stig, tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á 28 mínútum í leiknum. Samherji hennar Ástrós Lena Ægisdóttir var ekki í leikmannahópi Falcon í dag. 

Falcon hefur unnið 10 af 11 leikjum sínum á tímabilinu og er langefst í deildinni með 20 stig, átta meira en Herlev í öðru. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert