Sögulegar vinsældir í Finnlandi

Lauri Markkanen tók þátt í Stjörnuleik NBA á heimavelli sínum …
Lauri Markkanen tók þátt í Stjörnuleik NBA á heimavelli sínum í Saltvatnsborg í síðasta mánuði. AFP/Tim Nwachukwu

Körfuboltamaðurinn Lauri Markkanen er orðinn vinsælasti íþróttamaður Finnlands og það eru söguleg tímamót í landinu.

Basket.fi greinir frá þessu og vísar í umfjöllun Sponsor Insight um vinsælasta íþróttafólk landsins. Þar segir að Finnar eigi langa og ríkulega hefð af íþróttafólki í einstaklingsgreinum í fremstu röð og nú sé flokkaíþróttamaður í fyrsta sinn á toppnum.

Markkanen, sem er 25 ára gamall, á góðu gengi að fagna með Utah Jazz í NBA-deildinni en þar lék hann áður með Cleveland Cavaliers og Chicago Bulls.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert