Tryggvi Snær stóð fyrir sínu

Tryggvi Snær átti fínan leik fyrir Zaragoza en það dugði …
Tryggvi Snær átti fínan leik fyrir Zaragoza en það dugði ekki til. Ljósmynd/FIBA

Tryggvi Snær Hlinason skoraði átta stig, tók átta fráköst og gaf tvær stoðsendingar á þeim 15 mínútum sem hann lék í liði Zaragoza er liðið laut í lægra haldi fyrir Bilbao í spænsku ACB-deild­inni í dag.

Zaragoza er með 18 stig í 12. sæti deild­ar­inn­ar, átta stig­um fyr­ir ofan fallsæti að lokn­um 25 leikj­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert