Njarðvíkingurinn sterkur í spennuleik

Elvar Már Friðriksson lék vel með Rytas.
Elvar Már Friðriksson lék vel með Rytas. mbl.is/Óttar Geirsson

Rytas vann í kvöld nauman 99:93-heimasigur á Nevezis í efstu deild Litháens í körfubolta.

Rytas var með 16 stiga forskot fyrir fjórða og síðasta leikhlutann, en sterkt áhlaup Nevezis gerði það að verkum að lokakaflinn var spennandi.

Elvar Már Friðriksson átti sterkan leik fyrir Rytas, skoraði 15 stig, tók þrjú fráköst og gaf fimm stoðsendingar á 26 mínútum.

Rytas er í öðru sæti deildarinnar með 24 sigra í 30 leikjum. Aðeins Zalgiris Kaunas er með betri árangur, en toppliðið hefur unnið 25 leiki af 29.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert