Til Þorlákshafnar í þriðja sinn

Ragnar Örn Bragason í leik með Þór fyrir rúmu ári.
Ragnar Örn Bragason í leik með Þór fyrir rúmu ári. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ragnar Örn Bragason er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við körfuknattleiksdeild Þórs frá Þorlákshöfn.

Þetta er í þriðja sinn sem hinn 28 ára gamli Ragnar Örn semur við Þór.

Það gerði hann líka árið 2015 er hann kom frá uppeldisfélagi sínu ÍR. Tímabilið 2017/2018 söðlaði hann um og hélt til Keflavíkur en samdi svo að nýju við Þór sumarið 2018.

Ragnar Örn varð Íslandsmeistari með Þórsurum fyrir tveimur árum en lék á síðasta tímabili með ÍR, sem féll niður í 1. deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert