„Í seinni tíð hef ég sagt að annað fólk sé lítið“

„Ég hef alltaf verið mjög stór,“ sagði körfuknattleikskonan fyrrverandi Dagný Lísa Davíðsdóttir í Dagmálum.

Dagný Lísa, sem er 27 ára gömul, lagði skóna óvænt á hilluna í sumar en hún var meðal annars valin besti leikmaður úrvalsdeildarinnar tímabilið 2021-22.

Körfuboltinn lá beinast við

Dagný Lísa er 184 sentímetrar á hæð og hefur alla tíð verið hávaxin miðað við aldur.

„Einhver myndi segja mjög stór en í seinni tíð hef ég sagt að annað fólk sé lítið,“ sagði Dagný Lísa.

„Ég hef alltaf verið hávaxin og kannski lá það beinast við að fara í körfubolta,“ sagði Dagný Lísa meðal annars.

Viðtalið við Dagnýju Lísu í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Dagný Lísa Davíðsdóttir.
Dagný Lísa Davíðsdóttir. mbl.is/Óttar Geirsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert